Laga þessa síðu

Hægt er að nálgast lög aðildafélaga á síðum þeirra:


Lög Pírata á Íslandi

eftir köflum:

1. Heiti
2. Hlutverk
3. Félagsmenn
4. Aðalfundur
5. Fundahald, félagsfundir
6. Lög og stefnumál
7. Framkvæmdaráð
8. Úrskurðarnefnd
8.a. Trúnaðarráð
9. Starfsmenn
10. Umboðsmenn Pírata
11. Aðildarfélög
12. Fjármál
13. Þátttaka í kosningum
14. Störf þingflokks og annarra kjörinna fulltrúa
15. Framfarafundur
16. Félagsslit
[síðast uppfært]

1. Heiti


1.1. Nafn félagsins er Píratar. Aðsetur þess og varnarþing skal vera í Reykjavík.

1.2. Ensk þýðing á heiti félagsins er Pirate Party Iceland. Nota má hana sem hjáheiti.

1.3. Skammstöfun félagsins er PP-IS.

2. Hlutverk

2.1. Félagið er stjórnmálaflokkur.

2.2. Félagið mótar sér stefnu með opnu ferli og vinnur að framgöngu hennar með þeim aðferðum sem því standa til boða.

Upp

3. Félagsmenn

3.1. Hver sem er 16 ára á árinu eða eldri getur fengið fulla aðild að félaginu.

3.2. Félagatal skal teljast til viðkvæmra persónuupplýsinga og skal meðhöndlun þess vera í samræmi við landslög. Aðildarfélög skulu eiga rétt á afriti af félagatali sínu gegn undirritun lagalega bindandi yfirlýsingar af hálfu stjórnarmanna þess um að það verði einvörðungu notað vegna starfa innan aðildarfélagsins í samræmi við lög þessi og landslög. Framkvæmdaráði er þó rétt og skylt að sjá til þess að listi yfir trúnaðarmenn félagsins og aðildarfélaga sé aðgengilegur almenningi.

3.3. Félagar mega vera skráðir með dulnefni í félagatali.

3.4. Inntökubeiðnir í félagið, sem og úrsagnir skulu fara fram skriflega eða með rafrænum hætti.

3.5. Þeir sem vilja ganga í félagið skulu auðkenna sig með aðferð sem ákveðin er af framkvæmdaráði.

3.6. Skráningar og úrsagnir skulu gilda frá tímasetningu staðfestingar á móttöku.

3.7. Ákveða má félagsgjöld á aðalfundi.

3.8. Eingöngu félagsmenn mega gegna trúnaðarstöðum innan félagsins og aðildarfélaga. Nú hefur félagsmaður sagt sig úr Pírötum og fellur þá umboð hans til að gegna trúnaðarstöðum innan Pírata og aðildarfélaga þess sjálfkrafa úr gildi. Sama gildir ef félagsmaður gegnir á sama tíma, samkvæmt hans samþykki, trúnaðarstöðum hjá öðrum stjórnmálaflokki. Til trúnaðarstaða telst seta í stjórnum, nefndum, ráðum eða aðrar stöður þar sem einstaklingi er treyst, stöðu sinnar vegna, fyrir upplýsingum og/eða ákvarðanatöku sem er ekki í boði fyrir almenna félagsmenn þess sama félags. Framangreind umboð falla ekki sjálfkrafa niður ef félagið er bersýnilega stofnað í þeim tilgangi að gerast aðildarfélag Pírata og tekst það innan fjögurra mánaða frá stofnun þess. Aðildarfélög skulu sjá til þess að framkvæmdaráð sé upplýst um það hvaða trúnaðarstöður eru hjá því og hverjir gegna þeim.

3.9. Launað starfsfólk félagsins er undanþegið kröfu um félagsaðild. Allt starfsfólk félagsins skal skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu.

Upp

4. Aðalfundur

4.1.Aðalfund skal halda á hverju ári, fyrir lok septembermánaðar og telst fundurinn einnig vera almennur félagsfundur.

4.2. Á aðalfundi er mörkuð stefna félagsins og teknar ákvarðanir um starf þess, skipulag og fjárreiður.

4.3. Boða skal til aðalfundar með þriggja vikna fyrirvara og með öruggum hætti.

4.4. Framkvæmdaráð hefur heimild til að fresta aðalfundi eða aukaaðalfundi um viku frá auglýstri dagsetningu, en aðeins í eitt skipti.

4.5. Á félagsfundi samkvæmt 5. kafla er hægt að leggja fram tillögu um að boða til auka-aðalfundar. Slík tillaga skal koma fram í fundarboði. Sé hún samþykkt á félagsfundinum skal hún sett í kosningu í kosningakerfi Pírata til samþykktar eða synjunar. Sé hún samþykkt með að minnsta kosti ⅔ atkvæða í kosningakerfi Pírata er framkvæmdaráði skylt að boða auka-aðalfund eins fljótt og mögulegt er. Framkvæmdaráð hefur einnig sjálfstæða heimild til að boða til auka-aðalfundar.

Á auka-aðalfundi er ekki skylt að taka á dagskrá alla þá liði sem lög þessi segja fyrir um á aðalfundi. Hafi tillaga um boðun auka-aðalfundar innifalið skilyrði um dagskrá fundarins skal ráðið þó fylgja þeim.

4.6. Framkvæmdaráð skipuleggur dagskrá aðalfundar.

4.7 Fundargögn aðalfundar skulu afhent félagsmönnum með rafrænum hætti samhliða fundarboði. Verði fundargögn til eftir að boðað er til fundar skal afhenda félagsmönnum uppfærðan fundarboðspakka minnst þremur sólarhringum fyrir aðalfund.

4.8. Árskýrsla félagsins og ársreikningur fylgja öðrum fundargögnum.

4.9. Allir félagsmenn sem skráðir eru 30 dögum fyrir aðalfund hafa aðgang að honum. Allir félagsmenn skulu hafa möguleika á aðgangi að streymi af fundinum og/eða upptöku af honum. Mættum félagsmönnum skal gert ljóst að upptökur af fundinum verða gerðar opinberar um ókominn tíma.

4.10. Á aðalfundi er framkvæmdaráð ákveðið í samræmi við 7. grein.

4.11. Á aðalfundi eru tveir skoðunarmenn reikninga kjörnir með STV forgangskosningu.

4.12. Kjörstjórn tekur við framboðum í öll embætti og tryggir að allir frambjóðendur fái sanngjarna kynningu.

4.13. Frambjóðendur í embætti skulu skila inn hagsmunaskráningu til kjörstjórnar, einni viku fyrir aðalfund.

4.14. Slembivaldir framkvæmdaráðsmenn skulu skila inn hagsmunaskráningu eigi síðar en tveimur vikum eftir val þeirra.

4.15. Hagsmunaskráningar eru birtar á vefsíðu félagsins.

4.16. Nánari reglur um hagsmunaskráningu skulu útfærðar af framkvæmdaráði og háðar samþykki samkvæmt kosningu í rafrænu kosningakerfi Pírata, er skal standa í sjö sólarhringa. Sé engum slíkum reglum að dreifa er hagsmunaskráning yfirlýsing viðkomandi þar sem hann lýsir helstu hagsmunum sínum þá stundina.

4.17. Eingöngu viðstaddir félagsmenn skulu vera í slembivölum og teljast þeir vera í því nema þeir komi á framfæri yfirlýsingu um annað. Fjarstaddur félagsmaður skal þó eiga rétt á að vera í slembivali komi hann á framfæri tilkynningu til framkvæmdaráðs eða aðalfundar skýrri og ótvíræðri yfirlýsingu um að vera í því og skal þá réttilega álitið að hann samþykki þær stöður sem hann hlýtur á grundvelli þess. Eingöngu einn einstaklingur skal vera slembivalinn í einu. Nú er einstaklingur slembivalinn í stöðu samkvæmt lögum þessum, hann hefur þegar verið kjörinn eða slembivalinn í stöðuna á þeim fundi, hann afþakkar stöðuna eða uppfyllir ekki skilyrði laga þessara til þess að taka við stöðunni, og skal þá endurtaka slembivalið.

4.18. Annað hvert ár skal á aðalfundi kjósa þriggja manna kjörstjórn er tekur til starfa að loknum aðalfundi og þar til næsta kjörstjórn tekur við. Fulltrúinn sem hlýtur besta kosningu skal vera formaður nema kjörstjórn ákveði annað. Aðilar í kjörstjórn skulu ekki gegna öðrum trúnaðarstöðum á vegum félagsins eða aðildarfélaga á meðan setu þeirra stendur. Kjörstjórn ber ábyrgð á framkvæmd kosningar í framkvæmdaráð ásamt öðrum hlutverkum sem henni er falið með lögum. Ákvarðanir hennar skulu teknar með óháðum og óhlutdrægum hætti.

Upp

5. Fundahald (félagsfundir)

5.1. Fundir félagsins skulu að jafnaði vera opnir öllum.

5.2. Allir hafa málfrelsi á fundum.

5.3. Fundarmenn geta lagt fram tillögur á fundum.

5.4. Kosningar á fundum skulu að jafnaði fara fram með handauppréttingu.

5.5. Sé óskað eftir því má fundarstjóri ákveða að hafa atkvæðagreiðslur skriflegar eða rafrænar.

5.6. Sé óskað eftir því, og 5% fundarmanna en aldrei færri en þrír samþykkja það, skulu kosningar vera leynilegar.

5.7. Í kosningum á fundum eru ákvarðanir teknar með einföldum meirihluta.

5.8. Fundarsköp allra reglulegra ráða og nefnda á vegum Pírata skulu skilgreind og aðgengileg félagsmönnum. Liggi ekki fyrir skilgreind fundarsköp á fundi Pírata skal stuðst við Robert's Rules of Order.

5.9. Boða skal til almennra félagsfunda með viku fyrirvara með óvefengjanlegum hætti.

Upp

6. Lög og stefnumál

6.1. Lög þessi eru öll lög félagsins, en þeim má aðeins breyta með 2/3 meirihluta greiddra atkvæða félagsmanna í kosningakerfi flokksins.

6.2. Samfara þessum lögum skal vera grunnstefnuskjal félagsins. Gilda sömu reglur um breytingar á grunnstefnu og á lögum.

6.3. Tillögur að breytingum á lögum eða grunnstefnu skulu liggja opinberlega fyrir á vettvangi flokksins minnst tveimur vikum áður en kosið skal um þær.

6.4. Stefnu má ákveða með einföldum meirihluta í gegnum rafræn kosningakerfi félagsins.

6.5. Stefna má aldrei ganga gegn grunnstefnu félagsins.

6.6. Stefna skal alltaf rökstudd og hafa tilvísun í fyrri ákvarðanir félagsins.

6.7. Með samþykki 5% fundarmanna á almennum félagsfundi, en lágmark þriggja, skal vísa tillögu að stefnu til rafrænna kosninga.

6.8. Að jafnaði skulu rafrænar kosningar standa yfir í 6 daga.

6.9. Sé þörf á skjótri ákvarðanatöku má leggja til, með samþykki framkvæmdaráðs, hraðmeðferð á tillögu, en hún stendur þá yfir í sólarhring. Slíka ákvörðun þarf að staðfesta með hefðbundnum kosningum sem fara af stað samtímis. Skulu sérstök boð vera send til félagsmanna um að slík tillaga sé til kosningar. Þó þarf ekki staðfestingarkosningu til að staðfesta yfirlýsingu félagsins í samræmi við lög um upplýsingaráð, enda er þar ekki um lög eða stefnu félagsins að ræða.

 

 

6.10. Sérhver félagsmaður má stofna málefnahóp í kringum stefnumál. Tilkynna skal félagsmönnum um stofnun vinnuhóps.

6.11. Öllum er heimilt að taka þátt í málefnahóp, fundir þeirra skulu alltaf vera opnir.

6.12. Málefnahópur skal velja sér ábyrgðarmann og fundarritara.

6.13. Málefnahópur skilar reglulega skýrslu til félagsmanna um störf sín, í það minnsta þegar starf hópsins lýkur.

Upp

7. Framkvæmdaráð

7.1. Framkvæmdaráð annast almenna stjórn og rekstur félagsins.

7.2. Framkvæmdaráði er heimilt að skipa tímabundið eða varanlega nefndir, vinnuhópa og málefnahópa eftir þörfum. Hópar skipaðir af framkvæmdaráði skulu hafa ábyrgðarmann og skila vinnuskýrslu til ráðsins með reglulegu millibili. Skýrslu ber að skila að lágmarki við lok starfa hópsins.

7.2.1. Framkvæmdaráð skal setja þeim hópum sem það skipar reglur.

7.2.2. Reglur settar málefnahópi skipuðum af framkvæmdaráði mega ekki brjóta gegn reglum um málefnahópa í 6. kafla.

7.2.3. Reglum um nefndir og vinnuhópa skipuðum af framkvæmdaráði er heimilt að kveða á um lokaða fundi. Rökstyðja þarf þá heimild í reglunum.

7.2.4. Framkvæmdaráði er heimilt að slíta þeim hópum sem það skipar.

7.3. Í framkvæmdaráði sitja tíu fulltrúar. Kjörtímabil þeirra skal vera tvö starfsár.

7.3.1. Fjórir meðlimir framkvæmdaráðs, helmingur kjörinna fulltrúa, eru kjörnir í kosningu á aðalfundi ár hvert.

7.3.2. Kosning fer fram í rafrænu kosningakerfi félagsins. Atkvæði og niðurstöður eru talin með STV talningaraðferðinni.

7.3.3. Einn meðlimur framkvæmdaráðs er slembivalinn á aðalfundi ár hvert.

7.3.4. Slembival skal fara fram á undan kosningu. Sé frambjóðandi til framkvæmdaráðs valinn í slembivali fellur framboð hans niður nema hann hafni slembivalda sætinu.

7.4. Framkvæmdaráð skiptir með sér hlutverkum eftir hvern aðalfund. Skipa skal formann, gjaldkera, ritara og alþjóðafulltrúa.

7.4.1. Hafi framkvæmdaráð ekki komið sér saman um formann eftir tvo löglega framkvæmdaráðsfundi skal fara fram kosning meðal allra félagsmanna um formannsembættið í rafrænu kosningakerfi félagsins.

7.5. Félagsmenn sem hafa verið skráðir í félagið í 30 daga eða lengur, aðrir en kjörnir fulltrúar, geta átt sæti í framkvæmdaráði. Þó skal enginn sitja í framkvæmdaráði lengur en tvö kjörtímabil samfleytt.

7.6. Framkvæmdaráð skal funda að lágmarki mánaðarlega, og skal boða alla fulltrúa ráðsins til fundarins með að lágmarki viku fyrirvara.

7.6.1. Þrátt fyrir gr. 7.6. má boða fundi framkvæmdaráðs með minna en viku fyrirvara ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi. Ákvarðanir samþykktar á slíkum fundi taka gildi án tafar en framkvæmdaráði ber þó að taka þær fyrir á næsta löglega boðaða fundi, til samþykktar eða synjunar.

7.7. Halda skal fundargerð fyrir hvern fund framkvæmdaráðs og skal hún birt innan mánaðar.

7.8. Fundir framkvæmdaráðs skulu að jafnaði vera opnir öllum.

7.8.1. Framkvæmdaráð getur ákveðið að loka fundi eða hluta úr fundi þegar ræða á trúnaðarmál er varða flokkinn eða einstaklinga. Meirihluta ráðsmanna sem sitja fundinn þarf til þess að ákveða að loka fundum

7.8.2. Rökstuðning fyrir lokun fundarins þarf að bóka í fundargerð og rita efni hins lokaða fundar í trúnaðarbók

7.8.3. Meðlimir framkvæmdaráðs skulu rita undir trúnaðaryfirlýsingu gagnvart upplýsingum sem fram koma á lokuðum fundum

7.8.4. Framkvæmdaráð getur ákveðið að skipa sérstaka áheyrnarfulltrúa sem hafa heimild til að sitja lokaða fundi. Þeir fulltrúar skulu einnig rita undir trúnaðaryfirlýsingu

7.9. Framkvæmdaráðsfundur telst löglegur ef að lágmarki fimm meðlima þess mætir.

7.10. Rita má nafn firmans á löglegum fundi framkvæmdaráðs.

7.11. Ef þrír fundir framkvæmdaráðs í röð falla niður vegna vanskipunar skal boðað til aukaaðalfundar.

7.12. Nú fer einhver varanlega úr framkvæmdaráði skal ráðið engu að síður teljast löglegt á meðan að minnsta kosti sex meðlimir sitja áfram í því. Fari fjöldi meðlima framkvæmdaráðs niður fyrir þá tölu skal boða aukaaðalfund. Efni þess fundar skal vera kosning í laus sæti í ráðinu. Fulltrúar kjörnir á þeim fundi sitja út kjörtímabila þeirra sem þeir koma í staðinn fyrir. Skal beita hlutkesti til að ákvarða hvoru kjörtímabilinu nýkjörinn fulltrúi tilheyrir gerist þess þörf.

7.13. Ákvæði til bráðabirgða. Á fyrsta aðalfundi eftir samþykkt þessarar lagabreytingar skal velja tíu meðlimi í ráðið, átta kjörna og tvo slembivalda. Að lokinni þeirri kosningu skal slembivelja fjóra kjörna fulltrúa og einn slembivalinn sem sitja í skulu í eitt ár. Þeir fimm fulltrúar sem eftir eru sitja í fullt tveggja ára kjörtímabil."Upp

8. Úrskurðarnefnd

8.1. Ágreining um framkvæmd, túlkun og brot á lögum þessum skal vísa til úrskurðarnefndar sem úrskurðar í málinu.

8.2. Úrskurðarnefnd er skipuð þremur félagsmönnum og skulu þeir kosnir á aðalfundi ár hvert auk tveggja varamanna. Fulltrúar í úrskurðarnefnd skulu ekki gegna öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn á meðan þeir sitja í úrskurðarnefnd.

8.3. Úrskurðarnefnd úrskurðar sjálf um hæfi sitt og einstakra nefndarmanna í hverju máli fyrir sig. Varamaður tekur sæti í nefndinni þegar um vanhæfi aðalmanns í tilteknu máli er að ræða.

8.4. Úrskurðarnefnd tekur ákvarðanir aðeins í samræmi við lög félagsins og landslög.

8.5. Komi upp grunur um saknæmt athæfi skal úrskurðarnefnd vísa málinu til lögreglu.

8.6. Komi upp ágreiningur um brottrekstur skal úrskurðarnefnd úrskurða um málið.

8.7. Úrskurður úrskurðarnefndar er bindandi.

8.a. Trúnaðarráð

8.a.1. Framkvæmdaráð tekur við tilnefningum og skipar þrjá einstaklinga í trúnaðarráð. Skipun ráðsins skal staðfest á gildum félagsfundi.

8.a.2. Trúnaðarráð hefur með höndum sáttamiðlun og aðstoð þegar upp kemur ágreiningur eða annar vandi í samskiptum og starfi félagsmanna.

8.a.3. Trúnaðarráð er óháð í störfum sínum.

8.a.4. Aðildarfélög Pírata, framkvæmdaráð og einstaka félagsmenn geta vísað málum til trúnaðarráðsins en það getur einnig látið til sín taka að eigin frumkvæði.

8.a.5. Trúnaðarráð tekur engar bindandi ákvarðanir en getur vísað málum til úrskurðarnefndar eða eftir atvikum til lýðræðislegrar afgreiðslu á viðeigandi vettvangi félagsins.

8.a.6. Við val á fulltrúum í trúnaðarráð skal meta sérstaklega hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæðum vinnubrögðum og almennt traust meðal flokksmanna. Æskilegt er að þeir hafi áður gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Fulltrúar í trúnaðarráði skulu ekki gegna öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn á meðan þeir sitja í trúnaðarráði.

8.a.7. Skipunartími fulltrúa í trúnaðarráði helst í hendur við skipunartíma framkvæmdaráðs.

Upp

9. Starfsmenn

9.1. Framkvæmdaráði er heimilt að ráða starfsfólk fyrir hönd félagsins ef fjárreiður leyfa.

9.2.Framkvæmdastjóri, ef honum er til að tefla, skal hafa frumkvæði að ráðningu annars starfsfólk félagsins. Endanleg ráðning skal vera háð samþykki framkvæmdaráðs.
Framkvæmdaráði og framkvæmdastjóra er eingöngu heimilt að ráða starfsfólk að undangenginni auglýsingu um stöðuna, þar sem fram kemur starfslýsing og þær kröfur sem gerðar eru til starfsfólksins.

9.3. Þrátt fyrir gr. 10.2 er framkvæmdaráði heimilt að ráða til sín starfsfólk í tengslum við kosningabaráttu eða önnur tímabundin verkefni án auglýsingar. Þó skal leitast eftir því að auglýsa þau störf og verkefni eftir fremsta megni.

9.4 Félagsdeildum er heimilt að ráða til sín starfsfólk í tengslum við kosningabaráttu eða önnur tímabundin verkefni.

9.5. Félagsmenn geta sent erindi um störf eða frammistöðu starfsmanns flokksins til framkvæmdaráðs og skal framkvæmdaráð þá við fyrsta tækifæri kanna slík erindi í samráði við næsta yfirmann starfsmanns. Framkvæmdaráð skal í kjölfarið undirbúa og fylgja eftir áætlun sem hefur það að markmiði að skapa sátt um störf og starfsfólk félagsins.

9.6 Laun framkvæmdastjóra og annars starfsfólks skal ekki vera hærra en þingfararkaup.

9.7. Upplýsingar um starfsfólk skulu koma fram á vefsíðu félagsins.

Upp

10. Umboðsmenn Pírata

10.1 Píratar geta á almennum félagsfundum og Aðalfundi skipað umboðsmenn, einn eða fleiri, til að sinna ákveðnum, vel skilgreindum og tímabundnum verkefnum í umboði flokksins.

10.2 Verkefni umboðsmanna, skyldur þeirra til skýrslugjafar og tímamörk verkefnisins skal skilgreint í erindisbréfi sem lagt er fram á Aðalfundi flokksins eða almennum félagsfundi. Tímamörk verkefnis skal samsvara gildistima erindisbréfs.

10.3 Tímabinding skipunar skal vera eins þröng og kostur er og aldrei lengra en eitt ár. Hægt er að endurnýja erindisbréf þegar mest einn mánuður er eftir af gildistima fyrra erindisbréfs. Endurnýjun fer fram eins og um nýtt erindisbréf væri að ræða.

10.4 Framkvæmdaráð skal setja erindisbréf í rafrænt atkvæðagreiðslukerfi Pírata innan sólarhrings frá samþykkt félagsfundar eða Aðalfundar.

10.5 Erindisbréf öðlast gildi þegar það hefur verið staðfest á þrennan hátt. Fyrst með einföldum meirihluta í atkvæðagreiðslu meðal allra Pírata í rafrænu atkvæðagreiðslukerfi flokksins og svo af einföldum meirihluta aðalmanna í framkvæmdaráði og einföldum meirihluta þingflokks Pírata þegar slíkum flokki er til að dreifa.

10.6 Framkvæmdaráð og þingflokkur skulu greiða atkvæði um afdrif erindisbréfs innan 7 daga frá samþykkt erindisbréfs í rafrænni atkvæðagreiðslu. Láti framkvæmdaráð eða þingflokkur undir höfuð leggjast að greiða atkvæði um erindisbréf innan 7 daga frá samþykkt í rafrænni atkvæðagreiðslu skal það tákna samþykkt erindisbréfsins af þeirra hálfu.

10.7 Erindisbréf skal vera til umræðu í atkvæðagreiðslukerfi Pírata í sjö daga og atkvæðagreiðsla skal standa aðra sjö daga.

10.8 Fjöldi umboðsmanna verkefnis skal vera oddatala og skal hver umboðsmaður velja sér sinn varamann.

10.9 Umboðsmenn þurfa ekki að vera Píratar en geta verið sérfræðingar á því sviði sem verkefnið krefst eða eftir atvikum aðrir þeir sem sinnt geta verkinu.

10.10 Séu umboðsmenn verkefnis fleiri en einn skal þeirra fyrsta verk vera að skipta með sér verkum og kjósa sér fyrsta umboðsmann og einnig annan umboðsmann ef umboðsmenn eru fleiri en einn, úr sínum hópi.

10.11 Fyrsti umboðsmaður skal jafnan stýra fundum hópsins og sinna almennri verkstjórn hópsins en annar umboðsmaður skal rita fundi og taka við verkstjórn í forföllum fyrsta umboðsmanns.

10.12 Almennur félagsfundur eða Aðalfundur geta krafið umboðsmenn um skýrslu um stöðu verkefnis og skal henni skilað innan þriggja vikna frá þvi að hennar er krafist.

10.13 Hægt er að afturkalla erindisbréf umboðsmanna fyrir þau tímamörk sem bréfið kveður á um með sama hætti og þau eru búin til, sbr. 1. gr. og öðlast afturköllun gildi með sama hætti og erindisbréf, sbr. 5. gr.

Upp

11. Aðildarfélög

11.1. Heimilt er að líta svo á að lögaðilar séu aðildarfélög Pírata að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Félag sem óskar eftir að teljast aðildarfélag Pírata sendir umsókn um slíkt til framkvæmdaráðs, ásamt lögum sínum. Framkvæmdaráð úrskurðar hvort tilvonandi aðildarfélag uppfylli þau skilyrði sem hér eru lögð fram. Sé svo skal aðildarfélagið tafarlaust hljóta aðild, en að öðrum kosti skal því tilkynnt um þá ágalla sem á umsókninni eru.

11.2. Aðildarfélögum er óheimilt að ganga gegn lögum eða grunnstefnu Pírata. Úrskurðarnefnd er heimilt að fella niður aðild félags sem brýtur gegn lögum eða grunnstefnu.

11.3. Framkvæmdaráð heldur sameiginlega félagaskrá fyrir öll aðildarfélög Pírata. Allir félagar aðildarfélags teljast jafnframt félagar í Pírötum. Nú segir félagsmaður sig úr félaginu eða aðildarfélagi og hann gegnir trúnaðarstöðu hjá því og skal framkvæmdaráð þá tilkynna aðildarfélaginu um úrsögnina.

11.4. Aðildarfélagi ber að skila fundargerð aðalfundar, ársskýrslu og bókhaldsgögnum sínum til framkvæmdaráðs. Hafi slík gögn borist fyrir lok júnímánaðar telst aðildarfélag vera virkt.

11.5. Aðildarfélagi ber að skilgreina í lögum sínum hvenær það teljist starfhæft. Uppfylli aðildarfélag ekki eigin skilyrði um starfhæfni skal því slitið. Einnig skal aðalfundi Pírata heimilt að boða aðalfund í eða slíta óvirku aðildarfélagi. Eignir aðildarfélaga skulu renna til Pírata við félagsslit.

11.6. Starfssvæði svæðisbundins aðildarfélags skal vera minnst eitt sveitarfélag. Einungis skal eitt svæðisbundið aðildarfélag starfa í hverju sveitarfélagi. Þó skal heimilt að stofna aðildarfélag sem nær yfir heilt kjördæmi með aðkomu allra virkra aðildarfélaga innan þess kjördæmis. Úrskurðarnefnd sker úr um ágreining um starfssvæði.

11.7. Aðildarfélagi er heimilt að skipta starfsemi sinni frekar. Aðildarfélagi ber að gera framkvæmdaráði grein fyrir slíkri skiptingu að því leyti sem hún hefur áhrif á félagaskráningu.

11.8. Aðildarfélögum skal heimilt að kveða á um í lögum sínum að kjörstjórn Pírata hafi yfirumsjón með persónukjöri á vegum aðildarfélagsins. Sé heimildin nýtt skal kjörstjórn Pírata þá taka að sér það hlutverk í samræmi við lög aðildarfélagsins. Nú er kosningarferli innan aðildarfélags í gangi þegar ný kjörstjórn Pírata er valin og skal hún þá taka við framkvæmd þeirra kosninga sem í gangi eru ásamt þeim gögnum er fyrri kjörstjórn höfðu borist.

Upp

12. Fjármál

13.1. Bókhaldsár félagsins er almanaksárið.

12.2. Félagið skal lúta lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.

12.3. Bókhald félagsins skal vera opið almenningi á vefsíðu félagsins. Það skal uppfært jafn óðum, með fyrirvara um villur og samþykki aðalfundar.

12.4. Samþykktir ársreikningar skulu liggja fyrir á vefsíðu félagsins.

12.5. Félaginu er eingöngu heimilt að taka lán fyrir rekstri og öðrum útgjöldum félagsins ef áætlaðar tekjur eru fyrirsjáanlegar og öruggar. Engin lán sem binda félagið mega fara fram án samþykkis framkvæmdaráðs.

12.6. Félaginu er ekki heimilt að lána öðrum lögaðilum fé.

12.7. Öll fjárútlát sem fara yfir 200.000 kr, miðað við neysluvísitölu 1. október 2012 skulu vera skriflega samþykkt af framkvæmdastjóra eða gjaldkera.

12.8. Fé sem situr eftir í sjóðum eftir bókhaldsárið skal renna í sjóð næsta árs.

Upp

13. Þátttaka í kosningum

13.1. Þátttaka í kosningum er á ábyrgð aðildarfélaga á kjörsvæði. Ábyrgðaraðila ber að setja skýrar reglur um framboð Pírata.

Hafi aðildarfélögum innan kjördæmis til Alþingiskosninga ekki komist saman um annað skal starfa kjördæmisráð skipað einum fulltrúa fyrir hvert sveitarfélag þar sem Píratar hafa starfsemi.Kjördæmisráð, sé það starfandi, ber alfarið ábyrgð á þátttöku Pírata í kosningum til Alþingis innan kjördæmis síns.

Starfi engin aðildarfélög innan kjördæmis til alþingiskosninga er framkvæmdaráði heimilt að standa fyrir kjöri á lista fyrir það kjördæmi. Skulu allir félagsmenn Pírata hafa kosningarétt í slíku kjöri. Þeir sem raðast í fimm efstu sæti listans bera ábyrgð á þátttöku hans í kosningum.

13.2. Framkvæmdaráð annast samræmingu kosningabaráttu á landsvísu í samráði við aðildarfélögin. Framkvæmdaráð er heimilt að útbúa kosningastefnuskrá fyrir Alþingiskosningar út frá samþykktri stefnu.

13.3. Heimilt er að stofna til kosningabandalags við Alþingiskosningar. Aðildarfélögum er heimilt að veita samskonar heimild í lögum sínum hvað varðar sveitarstjórnarkosningar.

13.4. Allir félagsmenn, sem kjörgengir eru til þeirra kosninga sem um ræðir, geta gefið kost á sér á framboðslista.

13.5. Raða skal á framboðslista samkvæmt úrslitum forgangskosningar með Schulze-aðferð. Þó skal frambjóðendum heimilt að víkja sæti og taka lægra sæti á lista en kjör hans segir til um, og færast þá aðrir frambjóðendur ofar á lista. Starfsmanni er ekki heimilt að taka fyrsta eða annað sæti. Hafni frambjóðandi sæti eða geti af öðrum sökum ekki tekið því skal raða á lista með endurtalningu atkvæða að brottfelldum frambjóðanda. Nægi fjöldi frambjóðenda að þessum breytingum loknum ekki lögbundnu lágmarki fyrir fullskipaðan framboðslista er ábyrgðaraðila listans heimilt að bæta nöfnum þeirra sem það samþykkja í sæti á eftir þeim sem kjörnir hafa verið á framboðslistann.

Þrátt fyrir fyrstu málsgrein skal ábyrgðaraðilum tveggja eða fleiri kjördæma heimilt að halda sameiginlega framboðslistakosningu fyrir kjördæmi sín. Skal þá raðað á framboðslista kjördæmanna þannig að frambjóðendum sameiginlegu kosningarinnar sé dreift á framboðslistana í sem mestu samræmi við úrslit þeirra.

13.6  Ábyrgðaraðila er heimilt að setja frekari reglur um framkvæmd kjörs á framboðslista. Í slíkum reglum er heimilt að kveða á um skilyrði atkvæðisréttar í kosningu á framboðslista.
Félagsmaður, sem getur sýnt fram á að hann muni að óbreyttu hafa kosningarrétt við Alþingiskosningar, skal ætíð hafa atkvæðisrétt í kosningum á framboðslista í kjördæmi sínu. Þó má gera kröfu um að félagsmaður hafi verið skráður um ákveðið tímabil áður en kosning fer fram.

13.7. Framkvæmdaráð skal sjá til þess að kynningarferli á þeim sem gefa kost á sér á framboðslista endurspegli sem best gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.

Upp

14. Störf þingflokks og annarra kjörinna fulltrúa

14.1.Þingmenn Pírata skulu starfa í þágu alls félagsins. Þingmönnum ber ekki aðeins að taka tillit til stefnu heildarfélagsins, heldur einnig til stefnu aðildarfélaga sem málin varða.

Sveitarstjórnarfulltrúar skulu starfa í þágu þess svæðisbundna aðildarfélags sem starfar í sveitarfélagi þeirra. Svæðisbundin aðildarfélög skilgreina með hvaða hætti sveitarstjórnarfulltrúar eiga að taka mið af stefnumálum félagsins. Stefna heildarfélagsins skal aðeins geta talist leggja skyldur á sveitarstjórnarfulltrúa ef engin stefna aðildarfélags fjallar um málefnið.

14.2. Fundir þingflokka og sveitarstjórnarflokka mega vera lokaðir þrátt fyrir ákvæði 5. gr. séu málefnalegar ástæður fyrir því.

14.3. Haldi þingflokkur eða sveitarstjórnarflokkur lokaðan fund hefur hann tilkynningarskyldu til félagsmanna um efni fundarins og ástæður fyrir lokun.

14.4. Framkvæmdaráð getur óskað eftir því að kjörnir fulltrúar mæti á fund sinn.

14.5. Fulltrúar í þingflokkum og sveitarstjórnarflokkum skiptast á að gegna þeim embættum sem skylt er að þau taki sér, eigi lengur en til árs í senn.

14.6. Tilheyri þingflokkur minni hluta á Alþingi og geti ekki fengið aðstoðarmann til starfa á þinginu nema með því að hafa formann, skal einn þingmaður gegna embætti formanns félagsins, eitt þing í senn. Skal hann slembivalinn eftir þingkosningar, en gangi það í keðju þar eftir. Hann hafi ekki aukin pólitísk völd og afþakki formannsálag á þingfararkaup. Þingflokksformaður getur ekki einnig verið formaður félagsins.

14.7. Aðstoðarmenn þingflokka eða sveitarstjórnarflokka skulu að jafnaði starfa fyrir flokkinn sem heild.

Upp

15. Framfarafundur

15.1. Framfarafundur skal haldin á 8 vikna fresti.

15.2. Framkvæmdaráð skal boða til fundarins með amk. viku fyrirfara og skal hann auglýstur samkvæmt reglum flokksins sem varða tilkynninga og auglýsingaskyldu fundarhalda.

15.3. Framkvæmdaráð sér um að skipuleggja fundinn ásamt þingmönnum og málefnahópum séu þeir til staðar.

15.4. Á framfarafundi skal koma fram ítarleg úttekt á störfum þinghóps, framkvæmdaráðs og málefnahópa.

15.5. Á fundinum skal fara fram umræða um störf þinghóps, framkvæmdaráðs og málefnahópa.

16. Félagsslit

16.1. Félagsslit geta aðeins farið fram sé tillaga um slíkt á auglýstri dagskrá löglegs aðalfundar og samþykkt með ¾ hluta fundarmanna.

16.2. Við félagsslit skal ráðstafa eða skipta eignum félagsins í samræmi við tilgang þess og grunnstefnu.

Upp

Lög þessi eru byggð á samþykktum lögum Pírata í kosningakerfi Pírata. Ef um misræmi milli útgáfa af lögum er að ræða þá ræður textinn úr samþykktum lögum í kosningakerfinu: innra skipulag á x.piratar.is þó með fyrirvara um að númeraröð lagagreina hefur riðlast vegna viðbóta við lögin

[Síðast uppfært 21. 08 2016. Nýjustu breytingar: Endurbætur á lögum um Upplýsingaráð]